Lárentíus Kálfsson sendur frá Niðarósi til Íslands til að hafa eftirlit með kristnihaldi en var illa tekið. Hann vék ýmsum prestum úr embætti vegna fáfræði þeirra.
Solveigarmál kom upp á milli Lárentíusar Kálfssonar og prestsins á Bægisá annars vegar og Þóris Haraldssonar ábóta og munkanna í Munkaþverárklaustri hins vegar, en það var hörð deila sem snerist um við hvaða kirkju skyldi jarðsetja konu sem drukknað hafði í Hörgá.
13. október - Allir musterisriddarar í Frakklandi voru handteknir samkvæmt skipun Filippusar fagra (Filippusar 4.) og pyntaðir þar til þeir játuðu á sig villutrú. 13. október var föstudagur og þetta er oft sagt upphafið að hjátrúnni um föstudaginn 13.