2. maí - Þorsteinn Eyjólfsson hirðstjóri var hertekinn af lýbskum kaupmönnum á heimleið frá Noregi og fluttur til Lübeck, þar sem hann sat í fangelsi til 29. júlí. Þá var honum sleppt, hann handtekinn aftur þegar hann kom til Skánar, hafður í varðhaldi um tíma og að lokum fluttur til Noregs.
Floti Hansasambandsins hóf herför gegn Valdimar atterdag Danakonungi og brenndi m.a. verslunarstaðinn og konungssetrið Ögvaldsnes á Körmt í Noregi. Valdimar neyddist til að flýja Danmörku og leita ásjár hjá keisaranum. Ófriðnum lauk með Stralsundsamningnum árið 1370.