Byltingarher Kólumbíu Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia | |
---|---|
![]() Fáni FARC. | |
Skammstöfun | FARC |
Stofnun | 1964 |
Lögfræðileg staða |
|
Höfuðstöðvar |
|
Meðlimir | 7.000–10.000 (2013)[2][3][4][5][6][7] |
Lykilmenn |
|
Hugmyndafræði |
|
Byltingarher Kólumbíu (spænska: Fuerzas Armadas Revolucionarias de Colombia), skammstafað FARC, er kólumbísk skæruliðahreyfing sem stofnuð var árið 1964 sem marxísk-lenínísk hreyfing. FARC og kólumbísk stjórnvöld hafa verið í vopnaðri baráttu frá þeim tíma. Samtökin hafa fjármagnað sig meðal annars með sölu og ræktun á vímuefnum og mannránum sem krefjast lausnargjalds. FARC hefur verið skilgreint sem hryðjuverkasamtök af stjórnvöldum Kólumbíu, Bandaríkjanna, Kanada, Chile, Nýja Sjálandi og Evrópusambandinu.
Í júní árið 2016 skrifaði FARC undir vopnahlé við forseta Kólumbíu Juan Manuel Santos. Friðarsamningar voru gerðir og þjóðaratkvæðagreiðsla fyrirhuguð. Sama ár tók Evrópusambandið samtökin af lista hryðjuverkasamtaka.[8]
Í október 2016 hafnaði kólumbíska þjóðin friðarsamningunum með naumum mun. 50,24% voru á móti honum. Kólumbíska ríkisstjórnin skrifaði undir endurbætta friðarsamninga í nóvember 2016 og fékk leyfi fyrir þeim á kólumbíska þinginu án þess að leggja þá í þjóðaratkvæðagreiðslu.[9]
Í lok ágúst árið 2019 lýsti einn fyrrum skæruliðsleiðtoga samtakanna, Ivan Marquez, því yfir að hann og nokkrir aðrir fyrirliðar hreyfingarinnar myndu aftur hefja vopnaða baráttu. Hann telji að Kólumbíska ríkið hafi ekki virt friðarsáttmálann sem gerður var árið 2016, og muni sameina og leiða hóp andófsmanna sem deili þeim ergjum. [10]
Í 50 ára átökum hafa 260.000 manns látið lífið.[11]