Feldspat

Feldspat er nafn á mikilvægum hópi bergmyndandi steinda, sem byggja upp um 60% jarðskorpunnar.

Lýsing

Feldspatsteindir eru ál-siliköt sem tengjast aðallega kalíum (K), natríum (Na) eða kalsíum (Ca). Kristallar eru flatir eða strendings- og kubblaga, ógegnsæir eða hálfgegnsæir með bárótt eða óslétt brotsár. Eru alsettir samsíða kleyfnissprungum og tvíburasamvöxtur algengur. Oftast hvítt eða gráhvítt á litinn. Gler-eða skelplötugljái.

Flokkun

Feldspötum er skipt í eftirfarandi hópa:

Útbreiðsla

Feldspöt kristallast úr kviku, bæði í gangbergi og gosbergi. Þeir koma fyrir sem samfelldar steindir, sem bergæðar og eru einnig til staðar í mörgum gerðum myndbreytts bergs. Berg sem eingöngu er úr plagíóklas-feldspötum nefnist anortósít. Feldspöt finnast einnig í mörgum gerðum setbergs.

Heimild