Hrafn Oddsson kom til Íslands með konungsbréf um að allir þeir staðir, er ranglega væru teknir af leikmönnum og þeir og þeirra foreldrar hefðu á setið með réttri og löglegri hefð skyldu aftur hverfa undir forsjá leikmanna.
3. október - Játvarður 1. Englandskonungur lét í fyrsta skipti beita nýrri tegund líflátsaðferðar þar sem þeir sem dæmdir höfðu verið sekir um landráð voru dregnir, hengdir og hlutaðir sundur (dregnir á aftökustaðinn, hengdir þar til þeir voru nær kafnaðir og síðan hálshöggnir og líkið höggvið í fjóra hluta). Fyrsta fórnarlamb þessarar aðferðar var Dafydd ap Gruffydd, prins af Wales.