Jón Sigurðsson biskup lét handtaka þrjá munka í Þykkvabæjarklaustri og setja í járn. Þeir höfðu ári áður meðal annars barið Þorlák Loftsson ábóta og hrakið hann á burt og orðið berir að saurlífi. Einn munkanna var líklega Eysteinn Ásgrímsson, höfundur Lilju, og var hann settur í hálsjárn.
20. janúar - Jóhanna 1. varð drottning Napólí þegar Róbert afi hennar dó.
Jón skalli Eiríksson var vígður Grænlandsbiskup en fór aldrei til Grænlands, enda fréttist eftir að hann var vígður að Árni Grænlandsbiskup væri enn á lífi og gegndi starfi sínu.
Magnús Eiríksson sagði af sér sem konungur Noregs og Hákon 6. Magnússon var hylltur sem konungur. Hann var þó enn barn að aldri svo að í raun stjórnaði Magnús landinu áfram.