Ófaraár mikið í skiptöpum og byrleysum að sögn Lögmannsannáls. Aðeins eitt skip af tíu sem ætluðu frá Björgvin til Íslands, Pétursbollinn, komst til landsins en strandaði og brotnaði í spón á milli Krýsuvíkur og Grindavíkur. Mannbjörg varð en allur varningur tapaðist.