27. nóvember - Langaréttarbót gerð í Kaupmannahöfn af Kristjáni konungi 1. Tilgangur hennar var að koma á frið og lögum í landinu og þar er bann lagt við ribbaldaskap, ránsferðum og gripdeildum, fjölmennum yfirreiðum valdssmanna og fleiru slíku og mönnum bannað að halda „manndrápara, biskupsdrápara, prestadrápara, kirknabrjóta og kirknaþjófa".