Júní - Jarlinn af Warwick og Játvarður jarl af March (seinna Játvarður 4.) lentu með her á Englandi og tóku London.
10. júlí - Rósastríðin: Orrustan við Northampton. Hersveitir hertogans af York unnu sigur á konungsmönnum og Hinrik 6. konungur var tekinn höndum. Hann féllst á að gera Ríkharð hertoga að erfingja sínum en ekki Játvarð son sinn.
30. desember - Rósastríðin: Orrustan við Wakefield. Ríkharður hertogi af York féll þar og næstelsti sonur hans, jarlinn af Rutland, var tekinn af lífi eftir bardagann.