Tyche Vincent, sendiherra Danakonungs í London, skrifaði Jakobi 4. Skotakonungi og segist þar hafa kvartað munnlega við Hinrik 8. Englandskonung yfir því að sex árum áður hefðu Englendingar brotið upp læsta kirkju á Íslandi og rænt konungsskatti sem þar var geymdur.
Ferdínand Spánarkonungur gaf leyfi til að flytja þræla frá Afríku til að vinna á plantekrum á Karíbahafseyjum í stað innfæddra þræla. Þar með hófst flutningur svartra þræla til Ameríku.