Guðbrandur Þorláksson gaf út bækling sem hét Sú rétta confirmatio. Þar mælti hann fyrir um að ferming skyldi tekin upp í Hólabiskupsdæmi og lýsti hvernig hún skyldi fara fram.
Axlar-Björn tekinn af lífi á Laugarbrekkuþingi þetta vor, fyrir fjölda morða. Hann játaði sjálfur á sig níu morð, en var talinn hafa framið fleiri. Björn var lim-marinn með sleggjum, síðan afhöfðaður, loks „sundur stykkjaður og festur á stengur“.[1]
Erlendis
29. ágúst - Kristján 4. var krýndur en hann varð fullveðja þetta ár. Hann hafði verið Danakonungur frá 1588.