Þýskt skip strandaði í Hrútafirði og hafði það verið sent til að sækja annað skip sem hafði strandað þar árið áður. Þýskri galdrakonu var kennt um ströndin.
Bókin Enchiridion edur Hand Bok eftir David Chytræus og M. Chemnitz í þýðingu Guðbrands Þorlákssonar prentuð á Hólum. Í þeirri bók kemur orðið heimspeki fyrst fyrir í íslensku.
5. ágúst - Jarlinn af Gowrie og bróðir hans reyndu að ræna Jakob 6. Skotakonungi (síðar Jakob 1. Bretakonungi). Það mistókst og bræðurnir voru drepnir.
William Gilbert gaf út verkið De Magnete, Magneticisque Corporibus, et de Magno Magnete Tellure og lýsti þar rannsóknum sínum á áhrifum og virkni seguls.