13. febrúar - Blóðbaðið í Glencoe: Hersveitir Roberts Campbells slátruðu 38 manns úr MacDonald-klaninu í Glencoe fyrir að hafa að sögn neitað að sverja Vilhjálmi 3. hollustueiða.
Samkvæmt annálum fundust fimm heimilismenn frá Gröf í Norður-Múlasýslu dauðir í bænum. Þeir voru allir sprungnir á kviði og líkin þrútin og uppþembd. Hjá þeim í baðstofu fannst silungur á diski. Segir í annálum að það hafi líklega verið öfuguggi, en hann var samkvæmt hjátrú baneitraðastur allra kvikinda.
Fædd
14. febrúar - Pierre-Claude Nivelle de La Chaussée, franskt leikskáld (d. 1754).