Lög sett um friðun hreindýra, sem flutt höfðu verið inn á árunum 1784 og 1787.
Kaupskipið Fortuna strandaði í Eyvindarfirði á Ströndum og fórst öll áhöfnin. Halldór Jakobsson sýslumaður Strandamanna stóð sig svo illa við umsjón með björgun og meðferð strandgóssins að hann var síðar settur úr embætti.
Ólafur Stefánsson varð amtmaður í Vesturamti en Lewetsow, sem verið hafði amtmaður í Suður- og Vesturamti, hélt Suðuramti.
Ákveðið var með tilskipun Danakonungs að biskupar á Íslandi skyldu vígja hvorn annan en þyrftu ekki lengur að sækja sér vígslu til Danmerkur. Geir Vídalín varð þó eini biskupinn sem hlaut vígslu samkvæmt þessari tilskipun.