1. janúar - Fyrsta byggingarsamþykkt Reykjavíkur gekk í gildi. Samkvæmt henni var framvegis bannað að reisa torfbæi í bæjarlandinu. Fyrsti byggingafulltrúi Reykjavíkur tók til starfa.
20. júní - Bílaöld hófst á Íslandi er fyrsti bíllinn kom til landsins á vegum Ditlev Thomsen, kaupmanns. Bíllinn var gamall og slæmt eintak af gerðinni Cudell og gerði ekki mikla lukku.