Zenon, Austrómverskur keisari, leggur opinberlega niður stöðu Vestrómversks keisara þar sem öllum löndum sem áður tilheyrðu Vestrómverska keisardæminu er nú stjórnað af germönskum þjóðflokkum.
Vestgotar (Vísigotar), undir stjórn konungsins Evrik, ráða nú yfir svæði sem nær frá Loire ánni í Gallíu, í norðri, til Gíbraltar í suðri.
Syagríus, stjórnandi konungsríkisins Soissons í norður Gallíu, sem er í raun síðustu leifar Vestrómverska keisaradæmisins, tekst að verja ríki sitt gegn árásum Franka. Frankar stjórnuðu einnig svæðum í norður Gallíu og lögðu að lokum undir sig yfirráðasvæði Syagríusar árið 486.
Seinei tekur við föður sínum, Júríakú, sem keisari Japans.