Able Archer 83 var heræfing herafla Atlantshafsbandalagsins í Vestur-Evrópu frá 7. til 11. nóvember 1983. Æfingunni var stýrt frá Supreme Headquarters Allied Powers Europe í Casteau í Belgíu. Öll herfylki NATO í Vestur-Evrópu tóku þátt. Able Archer-heræfingar voru haldnar árlega en af ýmsum ástæðum var æfingin 1983 talin sérstök ógnun við Sovétríkin. Sumir sagnfræðingar hafa haldið því fram að Able Archer 83 hafi verið það næsta sem heimurinn hafi komist kjarnorkustyrjöld frá Kúbudeilunni 1962. Þetta er þó umdeild ályktun.
Ástæður þess að Able Archer 83 varð jafnafdrifarík og raun bar vitni voru margar. Ronald Reagan varð Bandaríkjaforseti 1981 og málflutningur hans gagnvart Sovétríkjunum var mun herskárri en fyrirrennara hans. Sama ár hleyptu leyniþjónusturnar KGB og GRU RJAN-njósnaáætluninni af stokkunum sem fólst í því að reyna að komast að því hvort Bandaríkjamenn ætluðu sér að gera kjarnorkuárás. Á sama tíma hertu Bandaríkjamenn á vopnakapphlaupinu og stunduðu sálfræðihernað með því að senda kafbáta og flugvélar ítrekað inn á áhrifasvæði Sovétmanna. Auk þess var áætlað að koma fyrir meðaldrægum bandarískum Pershing II-kjarnaflaugum í Vestur-Þýskalandi 1983 sem Sovétmönnum stóð sérstök ógn af þar sem þeir töldu þær gefa vesturveldunum tækifæri til kjarnorkuárásar að fyrra bragði. Spennan milli risaveldanna jókst enn þegar farþegavélin Korean Airlines-flug 007 var skotin niður yfir Japanshafi í september.
Heræfingin sjálf fól í sér ýmsar nýjungar sem gerðu hana raunsærri en fyrri æfingar, eins og notkun dulkóðaðra samskiptaleiða, talstöðvarbann og þátttöku evrópskra stjórnarleiðtoga. Allt fékk þetta ýmsa háttsetta aðila í Sovétríkjunum til að álykta að æfingin væri í raun herbragð til að fela undirbúning fyrir kjarnorkuárás að fyrra bragði. Sovétmenn settu því kjarnorkuflaugar sínar og flugheri í Póllandi og Austur-Þýskalandi í viðbragðsstöðu. Ótti Sovétmanna við innrás tók enda þegar æfingunni lauk 11. nóvember.
Able Archer 83 myndar sögulegan bakgrunn þýsku sjónvarpsþáttaraðarinnar Þýskaland '83 frá 2015.
Þátttakendur: Bandaríkin · Sovétríkin · ANZUS · Atlantshafsbandalagið · Samtök hlutlausra ríkja · Suðaustur-Asíubandalagið · Varsjárbandalagið | |
5. áratugurinn | Desemberatvikin · Jaltaráðstefnan · Unthinkable-aðgerðin · Potsdamráðstefnan · Gúzenkomálið · Masterdom-aðgerðin · Beleaguer-aðgerðin · Blacklist Forty-aðgerðin · Íransdeilan 1946 · Gríska borgarastyrjöldin · Korfúsundsatvikið · Deilan um tyrknesku sundin · Vonarræðan · Myndun bráðabirgðastjórnar í Þýskalandi · Fyrri Indókínastyrjöldin · Truman-kenningin · Ráðstefna um samband Asíuríkja · Marshalláætlunin · Valdaránið í Tékkóslóvakíu 1948 · Deilur Títós og Stalíns · Herkví Berlínar · Svik Vesturveldanna · Járntjaldið · Austurblokkin · Vesturblokkin · Kínverska borgarastyrjöldin · Malajauppreisnin |
6. áratugurinn | Kóreustríðið · Valdaránið í Íran 1953 · Uppreisnin í Austur-Þýskalandi 1953 · Valdaránið í Gvatemala 1954 · Skipting Víetnam · Fyrsta Formósusundsdeilan · Genfarráðstefnan (1955) · Mótmælin í Poznań 1956 · Uppreisnin í Ungverjalandi · Súesdeilan · Spútnikáfallið · Önnur Formósusundsdeilan · Byltingin á Kúbu · Eldhúskappræðurnar · Bandung-ráðstefnan · Bricker-frumvarpið · McCarthyismi · Gladio-áætlunin · Hallstein-kenningin |
7. áratugurinn | Kongódeilan · Deilur Kína og Sovétríkjanna · Njósnavélardeilan · Innrásin í Svínaflóa · Kúbudeilan · Berlínarmúrinn · Víetnamstríðið · Valdaránið í Brasilíu 1964 · Innrás Bandaríkjanna í Dóminíska lýðveldið · Landamærastríðið í Suður-Afríku · Stjórnarbyltingin í Indónesíu · Dómínókenningin · ASEAN-yfirlýsingin · Borgarastyrjöldin í Laos · Herforingjastjórnin í Grikklandi · Menningarbyltingin · Landamæradeilur Indlands og Kína 1962 · Vorið í Prag · Gúllaskommúnismi · Landamæradeilur Kína og Sovétríkjanna |
8. áratugurinn | Bætt sambúð risaveldanna · Samningur um bann við útbreiðslu kjarnavopna · Svarti september í Jórdaníu · Borgarastyrjöldin í Kambódíu · Borðtennisstefnan · Berlínarsáttmálinn · Heimsókn Nixons til Kína 1972 · Valdaránið í Síle 1973 · Jom kippúr-stríðið · SALT-viðræðurnar · Borgarastyrjöldin í Angóla · Borgarastyrjöldin í Mósambík · Ogadenstríðið · Stríð Kambódíu og Víetnam · Stríð Kína og Víetnam · Íranska byltingin · Kondóráætlunin · Frelsisstríð Bangladess · Korean Air Lines flug 902 |
9. áratugurinn | Stríð Sovétmanna í Afganistan · Ólympíuleikarnir sniðgengnir · Saga Samstöðu · Kontraskæruliðar · Mið-Ameríkukreppan · RYAN · Korean Air Lines flug 007 · Able Archer 83 · Geimvarnaáætlunin · Innrásin í Grenada · Mótmælin á Torgi hins himneska friðar · Innrásin í Panama · Fall Berlínarmúrsins · Byltingarnar 1989 · Glasnost · Perestrojka |
10. áratugurinn | |
Samtök og stofnanir | |
Kapphlaup | Vígbúnaðarkapphlaupið · Kjarnorkukapphlaupið · Geimkapphlaupið |
Hugmyndakerfi | |
Áróður | Pravda · Radio Free Europe/Radio Liberty · Rauða hættan · Voice of America · Voice of Russia |
Utanríkisstefna | Truman-kenningin · Marshalláætlunin · Innilokunarstefna · Eisenhower-kenningin · Dómínókenningin · Kennedy-kenningin · Friðsamleg sambúð · Austurstefna · Johnson-kenningin · Brezhnev-kenningin · Nixon-kenningin · Ulbricht-kenningin · Carter-kenningin · Reagan-kenningin · Viðsnúningur |