63°44′28″N 22°57′28″V / 63.74111°N 22.95778°V
Eldey er klettadrangur um 15 km suðvestan við Reykjanes sem er 77 metra hár. Eldey er þverhnípt og illkleif á alla vegu og er úr lagskiptu móbergi. Á Eldey er mikill súlubyggð, og árið 1844 var síðasti geirfuglinn drepinn þar vegna áhuga safnara á að eignast uppstoppað eintak. Eldey var friðuð árið 1940 og síðan lýst friðland árið 1974 samkvæmt náttúruverndarlögum.
Á Eldey er ein af stærri súlubyggðum heims, með um 14.000 - 18.000 súlupör sem verpa þar á hverju ári. Lífseigt hald manna er að varpið í Eldey sé það stærsta í heimi en það er ekki rétt. Stærsta súlubyggð í heimi er á St. Kildu við Skotland en þar verpa 60.428 pör.[1]Súlubyggðin í Eldey var fyrst metin 1939 af Vevers og Venables en 1949 af Þorsteini Einarssyni o.fl. Þeir töldu fuglana af báti en aðrir klifruðu upp á eyna til aða aðstoða við talninguna. 1953 var fyrst talið af stækkuðum ljósmyndum og hefur sú aðferð verið notuð nokkrum sinnum síðan. Beinar talningar og talningar af myndum gefa ekki alveg sambærilegar niðurstöður. Huxley, Fisher, Vevers og Þorsteinn Einarsson fengu 15.178 hreiður 1949 og töldu Eldey þá vera stærstu súlubyggð í heimi.[2] Áreiðanlegustu tölurnar síðustu áratugi er að finna í tveimur greinum fuglafræðingsins Arnþórs Garðarssonar í tímaritinu Bliki.[3] Þar sést að fjöldi súluhreiðra í Eldey hefur haldist svipaður undanfarna áratugi; 16.888 (1953), 18.200 (1961), 15.546 (1977), 14.194 (1983), 14.531 (1985), 16.030 (1999). Tölur eftir 1999 hafa ekki verið birtar.