Gjallarhorn er lúður eða blásturshorn sem Heimdallur blæs í þegar Ragnarrök skella á.[1] Drykkjarhorn Mímis er einnig nefnt Gjallarhorn.[2] Samkvæmt heimildum þarf önnur notkunin ekki að útiloka hina.[3]
Í þriðja bindi dönsku teiknimyndaseríunnar Goðheima, Veðmál Óðins (1982), yfirtaka bræður Óðins, þeir Vili og Vé stöðu hans í Ásgarði, og flytja Gjallarhornið frá Himinbjörgum til Valhallar þar sem það nýtist ekki til aðvörunar ef jötnar koma í Ásgarð.