Vestræn heimspeki Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Richard McKay Rorty |
Fæddur: | 4. október 1931 í New York |
Látinn: | 8. júní 2007 (75 ára) |
Skóli/hefð: | Gagnhyggja, Meginlandsheimspeki, Rökgreiningarheimspeki |
Helstu ritverk: | Philosophy and the Mirror of Nature; Consequences of Pragmatism; Contingency, Irony, Solidarity; Objectivity, Relativism and Truth; Truth and Progress; Achieving Our Country |
Helstu viðfangsefni: | þekkingarfræði, frumspeki, stjórnspeki |
Markverðar hugmyndir: | róttæk gagnhyggja, afstæðishyggja |
Áhrifavaldar: | John Dewey, W.V.O. Quine, Donald Davidson, Wilfrid Sellars, Søren Kierkegaard, Martin Heidegger, Michel Foucault, Jacques Derrida, Ludwig Wittgenstein, Friedrich Nietzsche, John Rawls |
Hafði áhrif á: | Robert Brandom, Cornel West, Sam Harris |
Richard McKay Rorty (4. október 1931 í New York – 8. júní 2007) var bandarískur heimspekingur. Rorty kenndi heimspeki við Wellesley College, Princeton University og University of Virginia en síðast almenna bókmenntafræði við Stanford University.
Rorty var í upphafi rökgreiningarheimspekingur en komst síðar í kynni gagnhyggjuna, einkum í gegnum rit Johns Dewey, sem hafði veruleg áhrif á viðhorf hans. Hann varð auk þess fyrir áhrifum frá W.V.O. Quine og Wilfrid Sellars. Síðar varð Rorty æ meira fyrir áhrifum frá meginlandsheimspeki, t.d. höfundum á borð við Søren Kierkegaard, Martin Heidegger, Michel Foucault og Jacques Derrida.