Í Landið þitt Ísland, eftir Þorstein Jósepsson, stendur um Tintron:
hraunketill í Reyðarbarmshrauni, sunnan Gljábakka í Þingvallasveit og ekki langt frá veginum austur að Laugarvatni. Hann er hyldjúpur og myrkur í botni hans. Giskað er á, að hann hafi myndast við mjög heitt gufuuppstreymi. Nokkru neðan við Tintron er hellir í hrauninu hjá svokallaðri Taglaflöt. Hann er sem næst 300-400 metra langur og myrkur í honum. Hellisopið er örskammt frá þjóðveginum.
Tilvísanir
↑Ein kenning: Matthías Þórðarson þjóðminjavörður hefir bent [..] á, að Tintron muni vera afbökun úr Tindtrón, nafnið sett saman úr orðunum „tindur" og „trón" (Mbl, 1942, 30. maí, 6)