6. mars - Téténskir uppreisnarmenn réðust á höfuðstöðvar rússneska hersins í Grosní með þeim afleiðingum að 70 rússneskir hermenn og 130 uppreisnarmenn létu lífið.
13. mars - Thomas Hamilton ruddist inn í leikfimisal grunnskólans í Dunblane í Skotlandi og skaut á allt kvikt og myrti sextán börn á aldrinum fimm til sex ára, auk þess sem hann skaut kennara þeirra til bana og særði tólf önnur börn. Hann beindi síðan byssu að sjálfum sér og svipti sig lífi.
15. mars - Hollenski flugvélaframleiðandinn Fokker varð gjaldþrota.
28. mars - Þrír breskir hermenn voru dæmdir sekir um að hafa nauðgað og myrt Louise Jensen á Kýpur.
Apríl
Handtökumynd af Theodore Kaczynski.
1. apríl - Sveitarfélagið Halifax var myndað úr fjórum eldri sveitarfélögum.
3. apríl - Boeing 737-herflugvél rakst á fjall norðan við Ragusa í Króatíu. Allir um borð, 35 talsins, létust, þar á meðal viðskiptaráðherra Bandaríkjanna Ron Brown.
11. apríl - 17 létust á Düsseldorf-flugvelli vegna reyks úr brennandi frauðplasti.
18. apríl - Qana-fjöldamorðin í Líbanon: Í það minnsta 106 líbanskir borgarar létu lífið er ísraelski herinn beitti sprengjum gegn byrgi SÞ nálægt Qana.
10. maí - Harmleikurinn á Everest 1996: 8 fjallgöngumenn létust þegar stormur skall skyndilega á Everestfjalli. Fyrir lok mánaðarins höfðu 4 aðrir látist.
29. júní - Tónleikar til stuðnings Prince's Trust voru haldnir í Hyde Park í London. Hljómsveitin The Who kom þar fram í fyrsta sinn frá 1989.
30. júní - Radovan Karadžić sagði af sér sem forseti Bosníuserba og Biljana Plavšić tók við.
Júlí
Bjarne Riis í Tour de France.
1. júlí - Ný lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins tóku gildi á Íslandi. Þau fólu meðal annars í sér afnám æviráðningar opinberra starfsmanna.
1. júlí - Þýsku réttritunarumbæturnar voru samþykktar af flestum þýskumælandi ríkjum.
2. júlí - Bræðurnir Lyle og Erik Menendez voru dæmdir í lífstíðarfangelsi í Los Angeles fyrir að myrða foreldra sína.
3. júlí - Boris Jeltsín sigraði aðra umferð forsetakosninga og var endurkjörinn forseti Rússlands.
5. júlí - Í Roslin-stofnuninni í Skotlandi fæddist gimbur sem hafði verið klónuð og því eingetin. Hlaut hún nafnið Dolly og lifði til 2003. Dolly var fyrsta klónaða spendýrið.
11. júlí - Russell-dómurinn gaf út handtökutilskipanir á hendur Radovan Karadžić og Ratko Mladić fyrir stríðsglæpi.
16. júlí - Matareitrun af völdum Escherichia coli olli veikindum 6000 barna í Japan og dauða tveggja.
17. júlí - Samband portúgölskumælandi landa var stofnað.
17. júlí - TWA flug 800 sprakk undan strönd Long Island í Bandaríkjunum. Allir um borð, 230 manns, fórust.
6. ágúst - NASA sagði frá því að loftsteinninn ALH 84001 gæti innihaldið leifar af frumstæðum lífverum.
7. ágúst - 87 manns fórust á tjaldstæði í rigningum við Huesca á Spáni.
13. ágúst - Könnunarfarið Galileo sendi frá sér gögn sem bentu til þess að vatn væri að finna á einu af tunglum Júpíters.
13. ágúst - Belgíski barnaníðingurinn Marc Dutroux var handtekinn ásamt eiginkonu sinni og hjálparmanni.
14. ágúst - Flugeldur varð til þess að háspennuvír féll á hóp af fólki í Arequipa í Perú með þeim afleiðingum að 35 létust.
16. ágúst - Airstan-atvikið: Áhöfn rússneskrar Il-76-herflugvélar sluppu úr haldi Talíbana eftir 378 daga í haldi og tókst að fljúga burt á flugvél sinni.
18. ágúst - Bandaríski blaðamaðurinn Gary Webb gaf út fyrstu greinina af þremur í San Jose Mercury News þar sem hann sýndi fram á tengsl milli krakkverslunar í Los Angeles og Kontraskæruliða í Níkaragva.
12. september - Ricardo López sendi Björk Guðmundsdóttur pakka með sýrusprengju og framdi síðan sjálfsmorð. Scotland Yard komst yfir pakkann nokkrum dögum síðar.
2. október - Andrej Lúkanov, fyrrum forsætisráðherra Búlgaríu, var myrtur.
2. október - Aeroperú flug 603 hrapaði í Kyrrahafið þegar öll tæki um borð biluðu skömmu eftir flugtak frá Límaflugvelli í Perú. Allir um borð, 70 að tölu, fórust.
12. nóvember - Tvær farþegaþotur frá Saudi Arabian Airlines og Kazakhstan Airlines rákust á yfir Nýju Delí á Indlandi með þeim afleiðingum að 349 létust.
17. nóvember - 32 létust í sprengingu í Kaspijsk í Rússlandi.
17. nóvember - Emil Constantinescu var kjörinn forseti Rúmeníu.
18. nóvember - Fuglafræðingurinn Tony Silva var dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir að vera leiðtogi páfagaukasmyglhrings.
19. nóvember - Geimskutlan Columbia lauk við lengstu geimferð Geimskutluáætlunarinnar, 17 daga og 15 tíma.
20. nóvember - Eldur kviknaði í Garley-byggingunni í Hong Kong. 41 fórst í eldinum.
21. nóvember - Yfir 100.000 mótmæltu afturköllun útvarpsleyfis Radio 101 í Sagreb í Króatíu.
23. nóvember - Ethiopian Airlines flugi 961 var rænt. Flugvélin hrapaði síðan í Indlandshaf þegar hún varð uppiskroppa með eldsneyti. 125 af 175 um borð fórust.
25. desember - Barnafegurðardrottningin JonBenét Ramsey var myrt í kjallara húss foreldra sinna í Boulder Kóloradó.
25. desember - Líbýskt flutningaskip rakst á vélbát með fjölda flóttafólks um borð. 283 drukknuðu í þessu mannskæðasta sjóslysi Miðjarðarhafsins frá lokum Síðari heimsstyrjaldar.