Gyrðir Ívarsson Skálholtsbiskup og Ormur Ásláksson Hólabiskup komu til landsins. Gyrðir hafði verið vígður ári áður en Ormur hafði dvalið í Noregi í fjögur ár og var einn fárra kirkjuhöfðingja sem lifðu af þegar Svartidauði gekk þar yfir.
Bóndinn á Fáskrúðarbakka var dæmdur fyrir veiðiþjófnað í Straumfjarðará, en Helgafellsklaustur átti annan veiðirétt þar. Var honum gert að greiða níu kýrverð.