Norðlenskir framámenn sem kvaddir höfðu verið utan á fund konungs komu aftur til landsins með konungsbréf þar sem Ormi Áslákssyni Hólabiskupi var boðið að virða fornan rétt þegnanna og skipað að leysa úr banni þá sem hann hafði bannfært.
Sáttafundur haldinn í Skálholti á milli Eysteins Ásgrímssonar og Ólafs Bjarnarsonar hirðstjóra, sem hafði látið taka Guttorm bróður Eysteins af lífi. Ólafur sigldi síðan til Noregs og átti ekki afturkvæmt.