Arngrímur Brandsson ábóti á Þingeyrum, sem skipaður hafði verið officialis meðan biskupslaust var á Hólum, var sviptur því embætti vegna ósættis við presta.
19. september - Hundrað ára stríðið: Englendingar undir forystu Játvarðar svarta prins unnu sigur á Frökkum í orrustunni við Poitiers og tóku Jóhann góða Frakkakonung höndum.