Jón skalli Eiríksson kom til Íslands, fyrsti biskupinn sem skipaður hafði verið beint af páfa. Skipið sem hann var á, Benediktsbáturinn, brotnaði í spón við landsteinana en allir björguðust.
Bæir í Mýrdal (Mýdal) eyddust vegna öskufalls, segir í annálum. Raunar á það gos að hafa verið í Trölladyngju en það stenst ekki. Líklega er hér um að ræða Kötlugos og þá það sama og sett hefur verið á árið 1357, en ártalið er raunar óvíst.