26. september - Á þriggja hreppa þingi í Spjaldhaga í Eyjafirði dæmdi Ambrosius Illiquad hirðstjóri Bjarna Ólason í Hvassafelli til að sæta upptöku eigna sinna, sem skyldu skiptast til helminga milli konungs og Ólafs Rögnvaldssonar Hólabiskups. Hirðstjóranum hafði mistekist að koma þessu fram árið áður.
Hallsteinn Þorsteinsson og Sesselja Þorsteinsdóttir gáfu jörðina Skriðu í Fljótsdal til klausturhalds.
31. júlí - Gyðingar reknir frá Spáni. Á milli 40.000 og 200.000 gyðingar yfirgáfu landið. Þegar Bajesíð 2., soldánn Ottómanaveldisins, frétti af brottrekstrinum sendi hann flota sinn til að flytja þá burt og fóru margir til Þessalóníku og Smyrnu í Ottómanaveldinu.