22. febrúar - Karl 8. Frakkakonungur hélt innreið sína í Napólí og gerði tilkall til hásætis ríkisins. Hann var krýndur konungur en tapaði borginni fljótlega aftur og varð að hverfa heim til Frakklands.
Fyrsta bókin sem prentuð var á dönsku kom út í Kaupmannahöfn, Den danske Rimkrønike (Danska rímkrónikan), söguljóð um fyrstu Danakonungana.
Fyrsta bókin sem prentuð var á sænsku kom út í Stokkhólmi, Bock aff dyäffwlens frästile (Bók um freistingar djöfulsins), þýdd bók sem átti að kenna almenningi að forðast freistingar hins illa.