Vor - Bjarndýr mikið kom á land á Skaga og var soltið mjög, mannskætt og grimmt, drap að sögn átta manneskjur, fátækar förukonur með börnum, og braut niður alla hjalla á Skaga fyrir utan Ketu. Fjórtán vopnuðum mönnum undir forystu Ketils Ingimundarsonar bónda í Ketu tókst loks að vinna á dýrinu.
Tugir manna drukknuðu í Ölfusá þegar Kaldaðarnesferja sökk í miðri á vegna ofhleðslu.