Júní - Montesúma 2. keisara Asteka, steypt af stóli þar sem hann var fangi Spánverja, og bróðir hans Cuitláhuac kjörinn keisari.
15. júní - Leó X páfi gaf út páfabulluna Exsurge Domine, þar sem hann hótaði Marteini Lúther bannfæringu.
1. júlí - La Noche Triste, stórorrusta milli Spánverja og Asteka á brú við borgina Tenochtitlán þar sem 400 Spánverjar og 2.000 innfæddir bandamenn þeirra týndu lífinu. Foringi Spánverja, Hernán Cortés, slapp naumlega.
Október - Cuitláhuac, keisari Asteka, dó úr bólusótt. Cuauhtémoc tók við.