Í júní - Bólusótt, sú fyrsta í 35 ár, berst með skipi frá Kaupmannahöfn til Eyrarbakka og breiðist þaðan um allt land. Um fjórðungur Íslendinga er talinn hafa látist úr henni, einkum yngra fólk. Var hún kölluð Stórabóla. Hún kom með fatakistli Gísla Bjarnasonar er úr sóttinni dó í hingaðsiglingu.
Jón Eyjólfsson varð varalögmaður sunnan og austan.
Jón Einarsson var skipaður skólameistari í Hólaskóla en dó úr bólusótt áður en hann náði að taka við embætti.