Jón Magnússon, sýslumaður Dalamanna, bannaði Jörfagleðina.
Alþingi var svo fámennt vegna bólusóttarinnar að enginn mundi slíkt. Enginn kom til þings úr Múlasýslum nema kona sem átti að drekkja og maður sem fylgdi henni.
11. mars - Anna Bretadrottning beitti neitunarvaldi gegn lögum um skoskan her. Breskir þjóðhöfðingjar hafa ekki beitt neitunarvaldi síðan þótt þeir hafi það enn formlega.