Halldór Þorbergsson lögréttumaður á Seylu, skrásetjari Seyluannáls (f. 1623).
Erlendis
17. apríl - Karl 6. varð keisari hins Heilaga rómverska ríkis.
9. júlí - Pétur mikli Rússakeisari umkringdur ásamt herliði sínu af fjölmennum tyrkneskum her við ána Prut.
22. júlí - Pétri mikla tókst að sleppa úr herkví Tyrkja með því að múta yfirmanni herliðsins.
Drepsóttin kýlapest gekk víða í Evrópu, meðal annars í Kaupmannahöfn, þar sem talið er að þriðjungur íbúa, um 23.000 manns, hafi dáið. Konungur veitti Garðbúum einkarétt á líkburði í borginni, sem þeir héldu til loka 18. aldar og höfðu ýmsir íslenskir stúdentar hluta lífsviðurværis síns af þeirri iðju.