2. maí - Leópold af Saxe-Coburg, síðar fyrsti konungur Belgíu, giftist Karlottu Ágústu prinsessu af Wales.
Júlí - Byron lávarður, Mary Wollstonecraft Godwin, Percy Bysshe Shelley og John Polidori dvöldu í Villa Diodati við Genfarvatn í Sviss og sögðu hvert öðru sögur. Út úr því spruttu tvær klassískar hryllingssögur, Frankenstein eftir Mary Shelley og Vampíran eftir Polidori.
Þetta var eitt kaldasta ár á norðurhveli jarðar í um sex hundruð ár og var kallað „árið þegar ekki kom sumar“. Vegna kulda um vorið og sumarið varð víða uppskerubrestur og hlutust af hörmungar og hungursneyð. Það sem olli loftslagsbreytingunum var eldgosið í Tambora-fjalli í Indónesíu vorið 1815 og gjóska sem þá barst út í andrúmsloftið.