Lík Malcolm X flutt frá morðstaðnum í Washington Heights.
4. febrúar - Sovéski búfræðingurinn Trofím Lysjenko var rekinn úr stöðu sinni við Sovésku vísindaakademíuna.
6. febrúar - 87 fórust þegar LAN Chile flug 107 hrapaði í Andesfjöllum eftir flugtak frá Santiago í Chile.
8. febrúar - 84 fórust þegar Eastern Air Lines flug 663 hrapaði í Atlantshafið eftir flugtak frá New York.
9. febrúar - Salvador Dalí málaði málverk af Raquel Welch í hótelherbergi í New York til að kynna nýjustu mynd hennar.
11. febrúar - Eftir tveggja vikna óeirðir tilkynnti forsætisráðherra Indlands, Lal Bahadur Shastri, að hætt hefði verið við að gera hindí að opinberu tungumáli í landinu í stað ensku.
12. febrúar - 29 aðgerðasinnar í Ástralíu fóru í Frelsisferð frumbyggja Ástralíu til að vekja athygli á kynþáttamismunun.
29. maí - 274 fórust í námuslysi í Dhanbad á Indlandi.
29. maí - Stærsta olíuvinnslusvæði Rússlands, Samotlor-olíuvinnslusvæðið, var uppgötvað.
Júní
Ed White fer fyrstur Bandaríkjamanna í geimgöngu.
Júní - Stúlknaheimilið Bjarg tók til starfa á Seltjarnarnesi. Tveimur árum síðar var því lokað vegna ásakana um ofbeldi gegn stúlkum sem voru vistaðar þar.
11. júlí - Ellefu bandarískir geimfarar komu til Íslands til að æfa væntanlega tunglgöngu. Í hópnum voru meðal annars Buzz Aldrin, Alan LaVerne Bean, David R. Scott og Eugene Andrew Cernan.
14. - 18. september - Breska rokksveitin The Kinks hélt nokkra tónleika í Austurbæjarbíói. Tónleikarnir voru kallaðir „fyrstu rokktónleikarnir á Íslandi“.
Október
3. október - KR vann sinn 19. íslandsmeistaratitil í knattspyrnu karla þegar að vann ÍA í úrslitaleik um titilinn.
26. október - Umferð var hleypt á nýja steypta/malbikaða Reykjanesbraut milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur. Vegtollur var innheimtur í tollskýli í Straumsvík þar til lán vegna veglagningarinnar var greitt upp 1972.