15. janúar – Farþegaflugvél nauðlenti á Hudsonfljóti við Manhattan. Allir 155 um borð lifðu af og flugmaðurinn, Chesley Sullenberger, var hylltur sem hetja.
4. febrúar - Tveir kjarnorkukafbátar, Le Triomphant (Frakkland) og HMS Vanguard (Bretland), rákust á á miklu dýpi í Atlantshafi. Áreksturinn varð á litlum hraða og engar skemmdir urðu, en málið vakti athygli á möguleikum kafbáta sem búnir eru ratsjárvarnarbúnaði til að komast hjá árekstrum.
9. febrúar - Skógareldarnir í Ástralíu 2009: Skógareldar ollu 200 dauðsföllum í suðausturhluta Ástralíu.
10. febrúar - Miðjuflokkur Tzipi Livni vann sigur í þingkosningum í Ísrael.
12. febrúar - Tveir gervihnettir, Iridium 33 og Kosmos 2251, rákust á. Þetta var fyrsti árekstur gervihnatta í geimnum.
13. febrúar - Bandaríska kapalstöðin Toon Disney hætti útsendingum og Disney XD tók við.
17. febrúar - 368 sjónvarpsstöðvar í Bandaríkjunum hættu hliðrænum útsendingum.
27. febrúar - Háttsettir embættismenn í Bandaríkjunum staðfestu að meginhluti herliðs Bandaríkjanna í Írak yrði fluttur þaðan árið 2010 og að síðustu hermennirnir færu burt 2011.
28. febrúar - Viktor Berthold, síðasti maðurinn sem átti líflensku að móðurmáli, lést.
Mars
2. mars - Forseti Gíneu-Bissá, João Bernardo Vieira, var myrtur þegar vopnaðir menn réðust á heimili hans í Bissá.
3. mars - Höll sem hýsti skjalasafn Kölnar hrundi með þeim afleiðingum að 9 létust og mikið af skjölum eyðilagðist.
3. maí - Ricardo Martinelli var kosinn forseti Panama.
6. maí - Alþjóðlegi Rauði krossinn sagði frá því að meira en 100 almennir borgarar hefðu fallið í loftárásum Bandaríkjahers á Farah-hérað í Afganistan.
11. maí - Geimskutlunni Atlantis var skotið á loft til að gera við Hubble-geimsjónaukann.
12. maí - Samtök fullveldissinna voru stofnuð gegn hugsanlegri aðild Íslands að Evrópusambandinu.
1. júní – Dularfullt flugslys varð yfir Atlantshafi þegar farþegaflugvél á leið frá Brasilíu til Frakklands hvarf. Orsök slyssins er óþekkt og aðeins lítill hluti af flugvélarbrakinu og líkum farþega hefur fundist.
12. júní – Mahmoud Ahmadinejad var endurkjörinn forseti Írans. Fjölmenn mótmæli stóðu yfir í nokkrar vikur eftir kosningarnar, þrátt fyrir tilraunir yfirvalda til að brjóta þau á bak aftur.
13. júní - Danski athafnamaðurinn Stein Bagger var dæmdur í 7 ára fangelsi fyrir fjársvik.
15. júlí - 168 fórust þegar Caspian Airlines flug 7908 hrapaði við Qazvin í Íran.
16. júlí - Alþingi Íslendinga samþykkti með 33 atkvæðum gegn 28 (tveir sátu hjá) að senda umsókn um aðild til Evrópusambandsins. Allir flokkar voru klofnir í afstöðu nema Samfylkingin.
11. ágúst - Magðalena Svíaprinsessa tilkynnti trúlofun sína og Jonas Bergström.
14. ágúst - Bretland tók upp beina stjórn yfir Turks- og Caicos-eyjum eftir rannsókn sem leiddi í ljós spillingu innan heimastjórnarinnar.
16. ágúst - Usain Bolt setti nýtt heimsmet í 100 metra hlaupi, 9,58 sekúndur.
22. ágúst - Hæstu verðlaun í lottói sem gengið hafa til einnar manneskju, 147,8 milljón evrur, fóru til vinningshafa í Superenalotto í Bagnone á Ítalíu.
7. september - Noregur og Svíþjóð gerðu með sér samning um sameiginlegan markað fyrir græn vottorð.
16. september - Yukio Hatoyama tók við embætti forsætisráðherra Japans.
17. september - Um 80 létust í árás stjórnarhersins á bækistöðvar íslamista í Jemen.
23. september - Ræningjar rændu peningageymslu öryggisfyrirtækisins G4S í Västberga syðst í Stokkhólmi. Ræningjarnir notuðu meðal annars bæði þyrlu og sprengiefni.
24. september - Indverska Tunglkönnunarfarið Chandrayaan-1 uppgötvaði mikið magn vatnssameinda á Tunglinu.