1. janúar - 21 lést í hryðjuverkaárás á kirkju í Alexandríu skömmu eftir miðnæturmessu.
3. janúar - Jarðskjálfti upp á 7,1 stig skók borgina Temuco í Síle.
4. janúar - Arabíska vorið: Götusalinn Mohamed Bouazizi lést eftir að hafa kveikt í sér til að mótmæla framferði stjórnvalda í Túnis.
8. janúar - Skotárásin í Tucson: Ungur maður myrti sex og særði 13, þar á meðal þingkonuna Gabrielle Giffords, í skotárás við Safeway-verslun í Tucson, Arisóna.
Loftmynd frá Sendai-héraði í Japan eftir flóðbylgjuna.
11. mars - Hamfarirnar í Japan 2011: Jarðskjálfti upp á 9,1 stig skók norðausturströnd Japans og olli gífurlegri flóðbylgju í kjölfarið. Að minnsta kosti 15.641 manns fórust. Kjarnorkuverið í Fukushima eyðilagðist og olli nokkurri geislamengun.
15. mars - Konungur Barein, Hamad bin Isa Al Khalifa, lýsti yfir neyðarástandi. Hersveitir Persaflóasambandsins voru sendar stjórn hans til aðstoðar.
31. mars - Hersveitir Alassane Ouattara héldu inn í höfuðborg Fílabeinsstrandarinnar til að setja forsetann, Laurent Gbagbo, af eftir að hann hafði neitað að viðurkenna tap í forsetakosningum árið áður.
11. apríl - Fyrrum forseti Fílabeinsstrandarinnar, Laurent Gbagbo, var handtekinn í forsetahöllinni af sveitum Alassane Ouattara með fulltingi franska hersins.
20. júlí - Goran Hadžić var handtekinn í Serbíu. Hann var sá síðasti af 161 sem Alþjóðlegi stríðsglæpadómstóllinn fyrir fyrrverandi Júgóslavíu handtók fyrir glæpi gegn mannkyni.
21. júlí - GeimskutluáætlunNASA lauk formlega þegar geimskutlan Atlantis lenti heilu og höldnu við Kennedy-geimferðamiðstöðina.
22. júlí - Mannskæð hryðjuverk voru framin í Noregi, fyrst með sprengjuárás á stjórnarbyggingar í Osló og skömmu síðar með skotárás á samkomu ungmennahreyfingar í Útey. 77 manns létu lífið. Öfgamaðurinn Anders Behring Breivik var handtekinn á staðnum fyrir að standa á bak við árásirnar.
7. september - Lokomotiv Jaroslavl-slysið: 44 fórust þegar flugvél sem flutti leikmenn íshokkíliðsins Lokomotiv Jaroslavl hrapaði við borgina Jaroslavl.
10. september - 240 létust og yfir 620 björguðust þegar ferjan MV Spice Islander I sökk við strendur Zanzibar.
15. september - Tveir úr áhöfn norsku farþegaferjunnar Nordlys fórust þegar eldur kom upp í skipinu.
15. september - Vinstriflokkarnir báru sigur úr býtum í þingkosningum í Danmörku. Helle Thorning-Schmidt varð fyrsti kvenforsætisráðherra landsins í kjölfarið.
17. september - Mótmælin Occupy Wall Street hófust í Bandaríkjunum. Þau leiddu til stofnunar Occupy-hreyfingarinnar sem breiddist út um allan heim í kjölfarið.
15. október - Heimsmótmælin 15. október 2011 fóru fram víða um Evrópu og í Bandaríkjunum.
18. október - Ísrael og hin palestínsku Hamas-samtök höfðu fangaskipti, þar sem Ísrael leysti 1027 palestínska fanga úr haldi í skiptum fyrir að Hamas leystu hermanninn Gilad Shalit úr gíslingu.
20. október - Aðskilnaðarhreyfing Baska, ETA, lýsti yfir að 43 ára pólitískri hryðjuverkastarfsemi, sem hafði orðið yfir 800 manns að bana á 43 árum, væri lokið.
27. október - Skuldakreppan í Evrópu: Evrópusambandið tilkynnti um 50% afskriftir grískra skuldabréfa, endurfjármögnun banka og hækkun björgunarsjóðs sambandsins í 1 billjón evra.
28. október - Leiðtogar Samveldisríkjanna samþykktu breytingar á reglum um erfðaröð bresku krúnunnar þannig að dætur og synir stæðu jafnfætis.
29. nóvember - Hópur mótmælenda réðist inn í sendiráð Bretlands í Teheran og lögðu það í rúst vegna viðskiptaþvingana sem Bretland hafði sett á Íran vegna kjarnorkuáætlunar landsins.
30. nóvember - Bretland sleit stjórnmálasambandi við Íran eftir árás á sendiráð landsins í Teheran.
Desember
Hugmynd listamanns um útlit Kepler-22b.
5. desember - Stjörnufræðingar uppgötvuðu plánetuna Kepler-22b sem líkist jörðinni að ýmsu leyti.
13. desember - Tveir senegalskir götusalar létust og margir slösuðust í skothríð á tveimur mörkuðum í Flórens á Ítalíu. Árásarmaðurinn var hægriöfgamaður sem framdi sjálfsmorð í kjölfarið.
29. desember - Eyríkin Samóa og Tókelá færðu sig vestur yfir daglínuna og slepptu úr einum degi (30. desember), til að flytjast yfir á tímabelti sem hentar viðskiptahagsmunum þeirra betur.