15. janúar - Tommy Remengesau tók við embætti forseta Palá.
16. janúar - Liðsmenn Al-kaída tóku hundruð erlendra starfsmanna gasvinnslustöðvar við In Amenas í Alsír í gíslingu. 37 gíslar og einn öryggisvörður létu lífið, auk 29 hryðjuverkamanna þegar öryggissveitir réðust til atlögu tveimur dögum síðar.
27. janúar - 242 létust þegar eldur kom upp á dansstað í borginni Santa Maria í Brasilíu.
27. janúar - Stein Reinertsen varð fyrsti biskup norsku kirkjunnar kjörinn af kirkjunni sjálfri eftir siðaskiptin.
28. janúar - EFTA-dómstóllinn felldi úrskurð sinn í máli ESA gegn Íslandi. Dómstóllinn sýknaði Ísland af öllum liðum ákærunnar og hafnaði öllum kröfum sem gerðar voru á hendur þjóðinni.
Febrúar
4. febrúar - Erfðafræðirannsóknir á líkamsleifum sem fundust í Englandi 2012 virtust staðfesta að þær væru úr Ríkharði 3.
28. febrúar - Benedikt 16. lét af embætti sem páfi rómversk-kaþólsku kirkjunnar. Hann var fyrsti páfinn sem sagði af sér frá árinu 1294.
Mars
6. mars - Á skömmum tíma snjóaði mikið og hvessti veður á Íslandi. Færð varð mjög slæm víða um land og 15 til 20 bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Kópavogslæk.
25. maí - Sikileyski presturinn Pino Puglisi sem mafían myrti 1993 var lýstur sæll af kaþólsku kirkjunni.
27. maí - Mótmælin í Gezi-garði í Istanbúl hófust.
31. maí - Stærsti skýstrokkur sem mælst hefur, El Reno-skýstrokkurinn, gekk yfir El Reno, Oklahoma, í Bandaríkjunum.
Júní
4. júní - Flóðin í Evrópu 2013: 4 létust þegar árnar Saxelfur og Saale flæddu yfir bakka sína.
6. júní - Edward Snowden greindi fréttamiðlum frá víðtækum persónunjósnum Bandaríkjastjórnar og flúði síðan land.
8. júní - Magdalena Svíaprinsessa gekk að eiga Christopher O'Neill.
10. júní - Mótmælin í Gezi-garði: Fjöldi manna lést í átökum mótmælenda og lögreglu í Tyrklandi.
11. júní - Gríska ríkisútvarpið ERT var lagt niður vegna niðurskurðar.
11. júní - Baron Waqa var kjörinn forseti af þingi Nárú.
14. júní - Flóðin í Norður-Indlandi 2013: Óvenjumiklar rigningar sköpuðu flóð og skriður í og við Uttarakhand á Indlandi með þeim afleiðingum að þúsundir fórust.
6. júlí - Í Yobe-fylki í Nígeríu réðust hryðjuverkamenn úr Boko Haram inn í skóla og brenndu 42 kennara og nemendur lifandi.
6. júlí - Járnbrautarslysið við Lac-Mégantic: Bensínflutningavagnar í járnbrautarlest við Lac-Mégantic í Kanada sprungu með þeim afleiðingum að 42 létust.
10. ágúst - Yfir 70 létust í hrinu hryðjuverkaárása í Írak eftir að Ramadan lauk.
14. ágúst - Ráðist var á mótmælabúðir stuðningsmanna Mohamed Morsi í Egyptalandi og 2.600 drepin. Samtökin Human Rights Watch lýstu atburðunum sem mestu fjöldamorðum á mótmælendum í sögu samtímans.
17. ágúst - Harðangursbrúin í Noregi var opnuð fyrir umferð.
21. ágúst - 1.429 létust þegar Sýrlandsher gerði efnavopnaárás á borgina Ghouta.
9. september - Borgaralegu flokkarnir í Noregi, undir forystu Ernu Solberg, fengu mesta meirihluta sem nokkurt kosningabandalag hafði fengið frá stríðslokum.
11. september - Yfir 1,6 milljón manns mynduðu mennska keðju í Katalóníu, Vía Catalana, til að kalla eftir sjálfstæði héraðsins.
13. september - Bein nýrrar manntegundar, Homo naledi, fundust í helli í Suður-Afríku.
17. september - Strandaða skemmtiferðaskipið Costa Concordia var rétt við. Aðgerðin tók 19 tíma.
19. september - Skip Greenpeace, Arctic Sunrise, var tekið af rússnesku strandgæslunni og allir 30 áhafnarmeðlimir handteknir.
21. september - Hryðjuverkamenn á vegum al-Shabaab frá Sómalíu gerðu árás á Westgate-verslunarmiðstöðina í Naíróbí í Kenýa og myrtu fólk í tugatali.
22. september - Kirkjusprengingin í Peshawar: 127 létust þegar sprengja sprakk við kirkju í Peshawar í Pakistan.
29. september - Blóðbaðið í Gujba: Liðsmenn Boko Haram réðust inn í skóla í Yobe-fylki í Nígeríu og myrtu 44 nemendur og kennara.
5. nóvember - Indverska geimfarinu Mars Orbiter Mission var skotið á loft.
8. nóvember - Fellibylurinn Haiyan, sem er sá öflugasti sem gengið hefur á land í heiminum, reið yfir Filippseyjar. Borgin Tacloban varð rústir einar. Tugir þúsunda manna fórust og hundruð þúsunda lentu á vergangi. Hjálparstarf gekk illa meðal annars vegna vatnavaxta og vegaskemmda.
13. nóvember - Nýr skýjakljúfur á lóð Tvíburaturnanna í New York, 4 World Trade Center, var vígður með viðhöfn.
14. nóvember - Dýrasti demantur heims, Pink Star, var seldur á 83 milljónir dala.
17. nóvember - 44 létust þegar Tatarstan Airlines flug 363 fórst við Kazan í Rússlandi.
20. nóvember - Lekamálið kom upp á Íslandi þegar Morgunblaðið og Fréttablaðið birtu upplýsingar úr minnisblaði frá Innanríkisráðuneytinu.
21. nóvember - Kreppan í Úkraínu hófst þegar Viktor Janúkóvitsj frestaði undirbúningi að inngöngu í Evrópusambandið.
30. nóvember - Tilkynnt var um Aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar um höfuðstólslækkun húsnæðislána, svokölluð skuldaleiðrétting verðtryggðra húsnæðislána almennings sem krafa hafði verið uppi um að eitthvað yrði gert í allt frá bankahruninu 2008.
30. nóvember - Tölvuhakkarinn AgentCoOfficial braust inn í tölvukerfi Vodafone Ísland og náði trúnaðargögn viðskiptavina Vodafone, þar með talin SMS-skilaboðum og setti á netið.
Desember
2. desember - Til skotbardaga kom á milli manns nokkurs og lögreglu í Árbæjarhverfi. Maðurinn varð fyrir skoti frá lögreglu og lést af völdum þess.
4. desember - Árásirnar í Írak 4. desember 2013: 35 létust í röð árása í Kirkuk í Írak.