12. apríl - Hershöfðinginn Anþemíus er kosinn keisari Vestrómverska ríkisins, að undirlagi austrómverska keisarans Leo 1.. Anþemíus giftist Alypu, dóttur germanska hershöfðingjans Ricimer, sem þá var hinn raunverulegi stjórnandi Vestrómverska ríkisins.
Vandalar, undir stjórn konungsins Genseriks, hefja ránsferðir frá ríki sínu í Norður-Afríku til Grikklands. Til að bregðast við þessu hefur Leó 1. undirbúning innrásar í ríki Vandala, í samvinnu við Vestrómverska ríkið. Innrásin verður framkvæmd árið 468.
Skandagupta, stjórnandi Gupta-veldisins á Indlandi deyr eftir 12 ára setu á valdastóli. Hálfbróðir hans Purugupta tekur við.