Anþemíus, keisari Vestrómverska ríkisins, biðlar til Breta um að aðstoða Rómverja í átökum við Vestgota (Vísigota). Bretar senda 12.000 manna herlið til Gallíu en eru sigraðir af Vestgotum undir stjórn konungs þeirra Evriks. Í kjölfarið stækka Vestgotar ríki sitt til norður-Gallíu.
Ódóvakar verður foringi sambands germönsku þjóðflokkanna Herúla og Skíra á norður-Ítalíu.
Romanus, rómverskur öldungaráðsmaður, er sakaður um að gera tilraun til valdráns gegn Anþemíusi keisara. Romanus er í kjölfarið tekinn af lífi í Rómaborg.