11. júlí - Anþemíus keisari Vestrómverska ríkisins er tekinn af lífi í Rómaborg eftir að hafa beðið lægri hlut gegn Ricimer, en þeir hafa þá tekist á um völdin um nokkurra mánaða skeið. Ricimer skipar í kjölfarið Olybríus sem keisara, en það eru þó Ricimer og frændi hans Gundobad sem hafa völdin í ríkinu.
2. nóvember - Olybríus deyr eftir um fjögurra mánaða setu á keisarastóli. Búrgundíski hershöfðinginn Gundobad hefur öll völd í Vestrómverska ríkinu og bíður með það í nokkra mánuði að skipa nýjan keisara.