Fjallafura
Fjallafura, P. mugo ssp. mugo
Fjallafura, P. mugo ssp. mugo
Ástand stofns
Vísindaleg flokkun
Ríki: Jurtaríki (Plantae)
Fylking: Berfrævingar (Pinophyta)
Flokkur: Barrtré (Pinopsida)
Ættbálkur: Pinales
Ætt: Þallarætt (Pinaceae)
Ættkvísl: Furur (Pinus)
Undirættkvísl: Pinus
sect. Pinus
subsection Pinus
Tegund:
P. mugo

Tvínefni
Pinus mugo
Turra

Fjallafura (fræðiheiti Pinus mugo) er furutegund sem vex í hátt til fjalla í Evrópu og finnst í Pýreneafjöllum, Ölpunum, Erzgebirge, Karpatafjöllum, norður Apennínafjöllum og fjöllum á Balkanskaga í 1000 m til 2200 m hæð en sums staðar í 200 m hæð í Þýskalandi og Póllandi og upp í allt að 2700 m í suðurhluta Búlgaríu og í Pýrenaafjöllum.

Það eru tvær undirtegundir:

Fjallafura/bergfura er mjög vindþolin, ljóselsk og hægvaxta[1]. Bergfura er mikið notuð í görðum, sérstaklega lágvaxna afbrigðið subsp. mugo.

Hún myndar blendinginn P. × rhaetica með skógarfuru þar sem þær vaxa saman. P. mugo er talið til ágengrar tegundar á hálendi Nýja Sjálands.

Á Íslandi

Bergfura/fjallafura hefur verið ræktuð á Íslandi síðan í kringum 1900. En á árunum 1899-1913 var hún gróðursett í reiti á Þingvöllum og á Grund í Eyjafirði [2]. Bergfura verður allt að 10-15 metra há hérlendis.[3] Hún vex víða um land, kelur sjaldan en getur verið viðkvæm fyrir sveppasjúkdómnum (furubikar). [4]

Svipmyndir

Tenglar

Tilvísanir

  1. Furutegundir Geymt 29 apríl 2016 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 4. febrúar, 2016.
  2. Bergfura[óvirkur tengill] Skógargátt, Skoðað 5. des. 2017.
  3. Skógræktin. „Bergfura“. Skógræktin. Sótt 9. maí 2020.
  4. Furutegundir Geymt 29 apríl 2016 í Wayback Machine Skógræktin. Skoðað 5. des. 2017.


 
Einkennismerki Wikiorðabókar
Wikiorðabókin er með skilgreiningu á orðinu
Fjallafura
 
Einkennismerki Wikilífvera
Wikilífverur eru með efni sem tengist
fjallafuru