Sighvatur Kristján Bjarnason (25. janúar 1859 – 30. ágúst 1929) var bankastjóri og bæjarfulltrúi í Reykjavík á fyrri hluta tuttugustu aldar.
Sighvatur fæddist í Reykjavík, sonur tómthúsmanns og útgerðarmanns í Hlíðarhúsum. Hann stundaði nám í bankastörfum í Kaupmannahöfn og gerðist bókari í Landsbankanum þegar hann tók til starfa árið 1886. Sighvatur var ráðinn bankastjóri hins nýstofnaða Íslandsbanka árið 1904 og gegndi starfinu til ársins 1921.
Hann átti sæti í bæjarstjórn Reykjavíkur með hléum frá 1900 til 1920 og var forseti bæjarstjórnar frá 1916.