Skjaldarmerki Trier Lega Trier í Þýskalandi
Upplýsingar
Sambandsland: Rínarland-Pfalz
Flatarmál: 117,13 km²
Mannfjöldi: 112.000 (2019)
Þéttleiki byggðar: 916/km²
Hæð yfir sjávarmáli: 137 m
Vefsíða: www.trier.de

Trier er háskólaborg í þýska sambandslandinu Rínarlandi-Pfalz og er með 112 þúsund íbúa (2019). Trier er með allra elstu borgum Þýskalands og var stofnuð af Rómverjum. Ýmis mannvirki þar í borg eru á heimsminjaskrá UNESCO.

Lega

Gamla Rómverjahliðið Porta Nigra er með þekktustu mannvirkjum Þýskalands

Trier liggur við ána Mósel nær vestast í sambandslandinu, aðeins um 8 km fyrir vestan landamærin að Lúxemborg. Næstu borgir eru Lúxemborg til suðvesturs (30 km), Saarbrücken til suðurs (60 km) og Koblenz til norðausturs (80 km).

Skjaldarmerki

Skjaldarmerki Trier sýnir Pétur postula með stóran lykil á rauðum grunni. Pétur er verndardýrlingur borgarinnar síðan á 12. öld. Merki þetta hefur verið nær óbreytt síðan á 15. öld.

Orðsifjar

Borgin hét upphaflega Augusta Treverorum á tímum Rómverja. Fyrri hlutinn var til heiðurs Ágústusar keisara. Seinni hluti heitisins er dregið af keltneska þjóðflokknum treveri sem bjó þar í grennd. Á tímum Claudiusar keisara var heitið lengt í Colonia Augusta in Treverum. Úr Treverum verður svo Treviris og loks Trier.[1]

Saga Trier

Módel af rómversku borginni Augusta Treverorum (Trier í dag).

Rómverjar

Það voru Rómverjar sem reistu borgina Trier 16 f.Kr. Þeir höfðu áður, 30 f.Kr., reist herlager á svæðinu, en höfðu yfirgefið það aftur. Borgin varð höfuðborg skattlandsins Belgica. Um miðja 3. öld var biskupsstóll stofnaður í Trier, en hann er sá elsti á þýskri grundu. Fyrsti biskupinn hét Eucharius. Trier varð keisaraborg Vestrómverska ríkisins síðla á 3. öld. Þar sátu keisarar eins og Konstantínus II., Valentiníanus I., Gratíanus, Magnus Maximus og Valentinanus II. Á þessum tíma var Trier stærsta borg Evrópu norðan Alpa. En snemma á 5. öld fóru germanir að flæða yfir lönd Rómverja. 413 og 421 hertóku frankar Trier og rændu hana. Atli Húnakonungur gerði slíkt hið sama 451. 475 náðu frankar borginni endanlega á sitt vald. Eftir það varð hún hluti af frankaríkinu mikla.

Miðaldir

Árið 882 eyddu víkingar borginni nær algjörlega, en þeir höfðu sigld upp eftir Rín og Mósel. Trier varð ekki hluti af þýska ríkinu fyrr en 925, en þá var Hinrik I keisari þar. 1212 veitti Otto IV keisari borginni fríborgarstatus. En Trier var ávallt sterkt biskupssetur. Erkibiskuparnir í Trier voru kjörfurstar í ríkinu og náðu þeir veraldlegum yfirráðum yfir borginni 1309. Þar með missti Trier fríborgarstatus sinn. Þetta fyrirkomulag hélst allt til tíma Napoleons. Trier var höfuðborg kjörfurstadæmisins, en þó bjuggu biskuparnir ekki þar fyrr en snemma á 16. öld. 1473 hittust Friðrik III keisari og Karl hinn kjarkmikli frá Búrgúnd á ráðstefnu í borginni. Sama ár var háskóli stofnaður í borginni sem var starfræktur allt þar til Napoleon lét loka honum. 1512 var haldið mikið ríkisþing í borginni.

Frakkar

Trier 1646. Mynd eftir Matthäus Merian.

Í 30 ára stríðinu var Trier hernumin tvisvar. Fyrst voru það Spánverjar 1634 en síðar voru það Frakkar 1645. Í 9 ára stríðinu voru Frakkar aftur á ferðinni. Erkibiskupinn og kjörfurstinn í Trier, Karl Kaspar, reyndi eftir fremsta megni að haldast hlutlaus í því stríði. Engu að síður gerðu Frakkar umsátur um borgina 1673 og gerðu árásir á hana. Hún féll þó ekki fyrr en eftir níu mánuði. Frakkar víggirtu borgina gríðarlega en urðu frá að hverfa 1675. Frakkar hernámu borgina á nýjan leik 1684 og 1688 og aftur 1702 og 1705 í spænska erfðastríðinu. Frakkar voru enn á ferðinni 1794 en þá hernam franskur byltingarher borgina. 1801 var borgin innlimuð Frakklandi og fengu íbúarnir við það franskar ríkisborgararétt. Við það leystist kjörfurstadæmið Trier upp. Frakkar lokuðu auk þess öllum klaustrum, en einnig háskólanum. Mörg klaustranna voru rifin, öðrum var umbreytt og fengu þau nýtt hlutverk. 6. janúar 1814 náðu Prússar að frelsa borgina og hrekja Frakka á brott. Vínarfundurinn úrskurðaði árið eftir að borgin skyldi tilheyra Prússlandi. Það gekk á ýmsu með prússneska stjórn, enda var borgin enn rammkaþólsk.

Nýrri tímar

Frakkar yfirgefa Trier 1930.

Borgarmúrar Trier fengu að standa langt fram á 19. öld. Helsta tekjulind borgarinnar voru hveiti- og sláturskattar. Flytja þurfti allar slíkar vörur um borgarhliðin allt til 1875. Þegar skattakerfinu var breytt voru nær allir borgarmúrar rifnir til að skapa pláss fyrir nýjar byggingar. Prússar yfirgáfu borgina eftir tap Þjóðverja í heimstyrjöldinni fyrri 1918. Frakkar hernámu hana þá enn einu sinni og héldu henni til 1930. Í heimstyrjöldinni síðari varð Trier fyrir nokkrum loftárásum. Þær verstu urðu í desember 1944, en þá vörpuðu Bandaríkjamenn og Bretar rúmlega 1.500 tonnum af sprengjum yfir borgina. Borgin féll í hendur bandamönnum 2. mars 1945 án teljandi bardaga. Síðan 1946 er Trier hluti af nýstofnuðu Rínarlandi-Pfalz. 1970 var háskólinn endurstofnaður. 1984 voru mikil hátíðarhöld í borginni í tengslum við 2000 ára afmæli Trier. 1986 voru ýmsar byggingar í borginni settar á heimsminjaskrá UNESCO, þar á meðal gamlar rómverskar byggingar (til dæmis Porta Nigra og baðhúsin), dómkirkjan og frúarkirkjan.

Íþróttir

Rómverskir leikar

Aðalknattspyrnulið borgarinnar er Eintracht Trier, en það leikur í neðri deildum. Kvennaliðið í handbolta leikur í 1. deild og varð þýskur meistari 2003. Körfuboltalið karla, TBB Trier, leikur í 1. deild og varð bikarmeistari 1998 og 2001. Hafnaboltaliðið Trier Cardinals varð þýskur meistari 1995 og 1996. Síðan 2000 fer rallakstur fram í og við Trier sem gefur stig á HM í rallakstri.

Viðburðir

Vinabæir

Trier viðheldur vinabæjatengslum við eftirfarandi borgir:

Frægustu börn borgarinnar

Byggingar og kennileiti

Rómversku baðhýsin eru rústir einar í dag
Rómverski leikvangurinn
Frúarkirkjan
Konstantínusarkirkjan
Gamla rómverjabrúin

Tilvísanir

  1. Geographische Namen in Deutschland. Duden. 1993. Bls. 259.

Heimildir