Neymar | ||
![]() | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Neymar da Silva Santos Júnior | |
Fæðingardagur | 5. febrúar 1992 | |
Fæðingarstaður | Mogi das Cruzes, Brasilía | |
Hæð | 1,75 m | |
Leikstaða | Sóknarmaður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Al Hilal | |
Númer | 10 | |
Yngriflokkaferill | ||
1999–2003 2003–2009 |
Portuguesa Santista Santos | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2009-2013 | Santos FC | 177 (107) |
2013–2017 | FC Barcelona | 123 (68) |
2017-2023 | Paris Saint-Germain | 112 (82) |
2023- | Al Hilal | 3 (0) |
Landsliðsferill2 | ||
2009 2011 2010- |
Brasilía U-17 Brasilía U-20 Brasilía |
3 (1) 7 (9) 125 (79) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Neymar da Silva Santos Júnior (fæddur 5. febrúar 1992) er brasilískur knattspyrnumaður sem spilar sem framherji fyrir sádíska Al Hilal og brasilíska landsliðið. Neymar hefur einnig spilað fyrir brasilíska liðið Santos, spænska liðið FC Barcelona og parísarliðið Paris Saint-Germain. Hann er þekktur fyrir að vera afkastamikill markaskorari og lipur knattreki. Hann er almennt talinn vera einn besti knattspyrnumaður heims og besti brasilíski leikmaður sinnar kynslóðar.
Þegar Neymar var nítján ára vann hann verðlaun sem besti suður-ameríski leikmaðurinn árið 2011, eftir að hafa lent í 3. sæti árið 2010. Neymar var tilnefndur til FIFA-gullknattarins, þar sem hann lenti í 10. sæti, og FIFA Puskás-verðlaunin sem hann vann. Honum hefur verið líkt við samlanda sinn, leikmanninn Pelé en árið 2023 sló Neymar markamet Pelé fyrir landsliðið.[1] Hann varð einnig dýrasti knattspyrnumaður allra tíma árið 2017 þegar Paris Saint-Germain keypti hann fyrir 222 milljónir evra.[2]
Neymar byrjaði í fótbolta á unga aldri og brasilíska liðið Santos fljótlega sá hann og bauð honum samning árið 2003 við félagið þar sem hann var tekinn inn í knattspyrnuakademíu þess, brasilískir leikmenn svo sem Coutinho, Clodoaldo, Diego, Elano og Alex hafa komið upp í gegnum knattspyrnuakademíu félagsins. Einnig hafa leikmenn svo sem Pepe, Pelé og Robinho byrjað feril sinn hjá Santos. Neymar spilaði fyrsta leik sinn með aðalliðinu þann 7. mars 2009, þrátt fyrir að vera aðeins sautján ára gamall. Hann kom af bekknum og spilaði síðustu 30 mínúturnar í 2-1 sigri gegn Oeste. Vikuna eftir skoraði hann fyrsta mark sitt fyrir Santos gegn Mogi Mirim. Á fyrsta tímabilinu sínu skoraði hann 14 mörk í 48 leikjum.
Neymar vann Puskas-verðlaunin árið 2011 þegar hann rak boltann framhjá þremur leikmönnum Flamengo og lék á varnarmenn liðsins áður en hann stýrði boltanum framhjá markverðinum til að skora.[3]
Árið 2012 var hann útnefndur besti suður-ameríski knattspyrnumaður ársins aðeins nítján ára að aldri.[4]
Árið 2013 var seinasta tímabil Neymars þegar spænska stórveldið Barcelona keypti hann. Hann skrifaði undir fimm ára samning við félagið.[5] Varaforseti félagsins, Josep Maria Bartomeu, sagði að þeir hefðu keypti hann fyrir 57,1 milljónir evra. Í janúar 2014 hófu skattayfirvöld á Spáni rannsókn á félagaskiptagjaldi sem Barcelona greiddi fyrir Neymar. Það kom í ljós að Börsungar keyptu hann í rauninni fyrir 86,2 milljónir evra. Í kjölfarið voru Barcelona og Bartomeu ákærðir fyrir skattaundanskot.[6]
Neymar spilaði fyrsta deildarleik sinn með félaginu í opnunarleik þess í spænsku úrvalsdeildinni áramótin 2013–14. Hann kom inn á fyrir Alexis Sánchez á 63. mínútu í 7–0 sigri gegn Levante.[7] Neymar skoraði fyrsta mark sitt fyrir félagið í 7-1 sigri gegn úrvalsliði frá Taílandi í vináttuleik í Bangkok þann 7. ágúst en fyrsta deildarmarkið hans var þann 24. september í 4-1 sigri gegn Real Sociedad.[8][9]
Þann 26. október lék Neymar sinn fyrsta El Clásico-leik. Hann skoraði fyrsta markið og átti stoðsendingu í sigurmarki Börsunga sem Alexis Sánchez skoraði þegar Barcelona vann Real Madrid 2-1 á Nývangi.[10]
Þann 13. september 2014, eftir að hafa komið af bekknum, skoraði Neymar fyrstu tvö mörk sín á tímabilinu og hjálpaði Barcelona að vinna Athletic Bilbao 2-0.[11] Þann 27. september skoraði hann þrennu gegn Granada í 6-0 sigri og skoraði í næstu þremur leikjum sínum í deildinni, þar á meðal opnunarmarkið í 1-3 tapi gegn Real Madrid á útivelli.[12][13]
Þann 24. janúar 2015 skoraði Neymar tvisvar og lagði upp tvö mörk í 6-0 sigri á Elche. Þann 28. janúar skoraði hann sitt 20. mark á tímabilinu í 3–2 sigri í 8-liða úrslitum spænska konungsbikarsins gegn Atlético Madrid.[14] Þann 4. mars skoraði Neymar tvisvar í 3-1 sigri Barcelona gegn Villarreal í undanúrslitaleiknum bikarsins og kom félaginu í 37. úrslitaleik þess í bikarnum.[15] Þann 21. apríl náði Neymar 30 mörkum á tímabilinu með því að skora tvö mörk í 2-0 sigri Barcelona á Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.[16]
Í maí, lokamánuði tímabilsins, skoraði Neymar síðasta markið í 3-0 sigri gegn Bayern München í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Viku síðar skoraði hann bæði mörkin í 3-2 tapi í seinni leiknum á útivelli til að tryggja að Börsungar kæmust í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.[17] Hann skoraði opnunarmarkið með skalla í 2-0 deildarsigri gegn Real Sociedad, úrslit sem skiluðu Börsungum fjögurra stiga forskoti á Real Madrid þegar aðeins tvær umferðir voru eftir.[18]
Eftir að hafa tryggt sér meistaratitilinn þann 17. maí með 1-0 sigri gegn Atlético Madrid á útivelli vann Barcelona 3-1 sigur á Athletic Bilbao á heimavelli í úrslitaleik spænska konungsbikarsins þann 30. maí 2015 og skoraði Neymar annað markið fyrir félagið.[19][20] Þar sem sigur Barcelona var líklegur gerði hann brellur á lokamínútum leiksins sem Andoni Iraola, mótherji hans, þótti óíþróttalegt. Luis Enrique, þjálfari Barcelona, sagði að það yrði að skilja að svona hegðun væri ásættanleg í Brasilíu, en Neymar sjálfur baðst ekki afsökunar.[21]
Þann 6. júní 2015 skoraði Neymar þriðja markið fyrir Börsunga í 3-1 sigri félagsins gegn ítölsku meisturunum Juventus á Ólympíuleikvanginum í Berlín og tryggði félaginu fimmta Evrópumeistaratitilinn.[22] Þetta gerði Barcelona að fyrsta félagi sögunnar til að vinna þrennuna tvisvar.[23] Hann varð jafnframt áttundi leikmaður sögu knattspyrnu til að vinna bæði Meistaradeildina í Suður-Ameríku og Evrópu og sá fyrsti til að skora í sigri úrslitaleiks í báðum keppnum.[24] Neymar endaði tímabilið með 39 mörk í öllum keppnum og tíu í Meistaradeildinni og var þar með markahæstur ásamt Cristiano Ronaldo og liðsfélaga sínum Lionel Messi í síðarnefndu keppninni.[25] Hann var fyrsti leikmaðurinn fyrir utan þessa tvo til að komast á stigalista keppninnar síðan samlandi hans Kaká á tímabilinu 2006-2007.[26] Sóknartríóið Messi, Luis Suárez og Neymar, skammstafað „MSN“, endaði tímabilið með 122 mörk, sem er það mesta á tímabili fyrir sóknartríó í sögu spænskrar knattspyrnu.[27]
Neymar greindist með hettusótt og var búist við að hann myndi missa af Ofurbikar Evrópu árið 2015 og Ofurbikar Spánar sama ár.[28] Þann 17. október skoraði Neymar fjögur mörk í 5-2 heimasigri Börsunga gegn Rayo Vallecano í deildinni, sem þýddi að hann hafði skorað samtals átta mörk á tímabilinu og varð markahæstur í deildinni.[29] Þann 21. nóvember skoraði Neymar eitt og gaf Andrés Iniesta stoðsendingu með hæl í 4-0 útisigri gegn Real Madrid.[30] Hann skoraði tvisvar í 4-0 heimasigri gegn Real Sociedad þann 28. nóvember og náði því samtals 14 mörkum í 12 leikjum í deildinni.[31][32] Þann 30. nóvember var Neymar tilnefndur til FIFA-gullknattarins ásamt Messi og Ronaldo og lenti í þriðja sæti.[33] Þann 22. maí 2016 skoraði Neymar seint mark í 2-0 framlengingu Barcelona gegn Sevilla í úrslitaleik spænska konungsbikarkeppninnar árið 2016 á Vicente Calderón, þar sem félagið fagnaði tvennunni heima annað tímabil í röð, eftir þrennuna á seinustu tímabili.[34][35] Sóknartríóið Messi, Suárez og Neymar enduðu tímabilið með 131 mörk og slógu þar með metið sem þeir höfðu sett árið áður fyrir flest mörk af sóknartríói á einu tímabili.[36]
Í 6–1 sigri Barcelona gegn Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar vann Neymar kraftaverk í endurkomu Börsunga, með því að skora tvö mörk og leggja upp mark Sergi Roberto á lokamínútunum, þar af var hann útnefndur maður leiksins.[37] Eftir að hafa unnið gegn Parísarliðinu í 4–0 tapi í fyrri leik liðanna þann 14. febrúar 2017 varð þessi leikur stærsta endurkoma í sögu Meistaradeildarinnar.[37][38]
Þann 2. apríl skoraði Neymar sitt hundraðasta mark fyrir Barcelona í 177. leik sínum fyrir félagið og skoraði í 4-1 sigri gegn Grenada.[39] Þann 27. maí skoraði Neymar í úrslitaleik spænska konungsbikarins árið 2017, 105. mark hans fyrir félagið, þegar Barcelona sigraði Alavés 3-1 á Vicente Calderón í Madríd.[40]
Neymar lýsti yfir löngun sinni til að fara frá Barcelona í júní 2017 í brúðkaupsveislu Messi, Xavi greindi frá því.[41] Í júlí höfðu fjölmiðlar vangaveltur um för hans frá Barcelona til Parísar SG, hann langaði að stíga út úr skugga Messis og verða afburðamaðurinn.[42][43] Þrátt fyrir seinlæti Barcelona fékk Neymar að fara þann 2. ágúst 2017.[44]
Neymar gekk til liðs við Paris Saint-Germain í ágúst 2017 fyrir metfé, 222 milljónir evra.[45] Hann varð dýrasti leikmaður knattspyrnumaður allra tíma.[45] Þrátt fyrir fjárhagslega og lögmæta skandala náði Neymar miklum árangri með félaginu með því að vinna margoft frönsku úrvalsdeildina og komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar.[46][47] Neymar var plagaður af meiðslum hjá félaginu.[48] Neymar fór frá félaginu í ágúst 2023.[47] Orðrómur um endurkomu til Barcelona gekk en átti sér aldrei stað og önnur stórveldi forðuðust að kaupa Neymar.[49]
Þann 15. ágúst 2023 gekk Neymar til liðs við Al Hilal í Sádi-Arabíu í tvö ár fyrir 90 milljónir evra.[47]
Neymar lék sinn fyrsta leik fyrir brasilíska landsliðið í ágúst 2010 þegar hann var 18 ára. Hann varð lykilmaður og einn hæfileikaríkasti í liðinu.
Neymar gegndi lykilhlutverki í árangri Brasilíu á HM. Í fjórðungsúrslitum keppninnar gegn Kólumbíu slaðaðist hann illa þegar mótherji hans Juan Camilo Zúñiga braut á honum.[50] Neymar fékk þungt högg á bakið og var borinn af velli á börum.[51] Hann missti af undanúrslitaleiknum gegn Þýskalandi sem Brasilía tapaði 7-1.[52]
Neymar gegndi lykilhlutverki í að vinna Brasilíu sitt fyrsta Ólympíugull í knattspyrnu. Úrslitaleiknum á móti Þýskalandi lauk með 1-1 jafntefli en Brasilía vann 5-4 í vítaspyrnukeppni. Neymar skoraði fyrsta mark leiksins með skoti beint úr aukaspyrnu og skoraði síðan úr síðustu vítaspyrnunni í vítaspyrnukeppninni.[53]
Í maí 2018 var Neymar valinn í HM-hóp Brasilíu 2018.[54] Eftir þriggja mánaða fjarveru vegna meiðsla kom hann aftur þann 3. júní 2018 og skoraði mark í 2-0 sigri í vináttuleik gegn Króatíu.[55] Stuttu síðar varð hann þriðji markahæsti leikmaður Brasilíu og skoraði sitt 55. landsleiksmark í 3-0 sigri í vináttuleik gegn Austurríki.[56] Í öðrum leik Brasilíu á HM gegn Kosta Ríka skoraði Neymar annað mark liðsins í uppbótartíma og tryggði 2-0 sigur og 56. landsleiksmark sitt.[57] Hann hélt áfram góðri frammistöðu sinni í 16-liða úrslitum gegn Mexíkó þar sem hann skoraði mark og lagði upp annað í 2-0 sigri.[58] Þrátt fyrir góða frammistöðu sína var Neymar gagnrýndur fyrir leikaraskap og hegðun.[59] Brasilía tapaði 2-1 fyrir Belgíu í 8-liða úrslitum þann 6. júlí 2018 þar sem markvörður Belga, Thibaut Courtois, varði skot Neymars í horn, til að jafna metin, stórkostlega.[60]
Neymar sagði í samtali að Ísland myndi koma mest á óvart á heimsmeistaramótinu.[61]
Í maí 2019 var Neymar valinn í 23 manna hóp Brasilíu fyrir Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 2019 í heimalandi sínu en missti af henni vegna meiðsla í 2-0 sigri gegn Katar í vináttulandsleik.[62] Brasilíumenn urðu meistarar þrátt fyrir að leika án Neymars.[63]
Í Suður-Ameríkukeppni karla í knattspyrnu 2021 stóð Neymar sig frábærlega fyrir Brasilíu. Hann skoraði í opnunarleiknum gegn Venesúela og lagði upp annað mark í 3-0 sigri.[64] Í næstu leikjum hélt hann áfram frábærri frammistöðu sinni þar sem hann skoraði gegn Perú og lagði upp mikilvæg mörk gegn Kólumbíu og Síle í 8-liða úrslitum.[65] Þrátt fyrir tilraunir Neymars tapaði Brasilía 1-0 fyrir Argentínu í úrslitaleiknum.[66] Hins vegar var hann valinn leikmaður keppninnar ásamt Lionel Messi fyrir framúrskarandi frammistöðu í keppninni.[67]
Á HM 2022 skoraði Neymar í fyrsta leik sínum gegn Serbíu og í 4-1 sigri gegn Suður-Kóreu í 16-liða úrslitum.[68][69] Þrátt fyrir stórkostlegt mark Neymars tapaði Brasilía gegn Króatíu í vítaspyrnukeppni.[70]
Þann 18. október 2023 sleit Neymar krossband í leik Brasilíu og Úrúgvæ og fór grátandi af velli.[71]
Neymar á mjög náið samband við systur sína Rafaella Beckran og heiðraði hana með því að húðflúra andlit hennar á handlegginn, en Beckran húðflúraði augu bróður síns á handlegg hennar.[72]
Neymar er kristinn og aðhyllist mótmælendatrú.[73][74] Hann hefur endrum og sinnum borið höfuðband með orðunum „100% Jesús“ og sagt frá trú sinni.[53] Neymar hefur að sögn einnig borgað kirkju sinni tíu prósent af tekjum sínum og hefur nefnt Kaká sem fyrirmynd hans trúarlega.[75] Á hverju ári skipuleggur Neymar góðgerðarleik með brasilíska knattspyrnumanninum Nenê í heimabæ hans, Jundiaí, í þeim tilgangi að útvega mat fyrir fjölskyldur sem þurfa á að halda.[76] Auk móðurmáls hans portúgölsku talar Neymar einnig spænsku.[77]
Í júlí 2019 tilkynnti lögreglan að rannsókn á nauðgun gegn Neymar yrði fellt niður vegna ófullnægjandi sönnunargagna.[78] Þann 2. september 2020 bárust fréttir um að Neymar ásamt liðsfélögum hans, Ángel Di María og Leandro Paredes, greindust með COVID-19. Franska íþróttablaðið L'Équipe sagði að leikmennirnir þrír höfðu fengið leyfi tímabundið á Ibiza. Vegna þess þurftu aðrir leikmenn og starfsfólk að fara í Covid-próf sömu viku.[79][80]
Í leik Paris Saint-Germain og Marseille tilkynnti Neymar um að hafa orðið fyrir barðinu á kynþáttaníði af hendi Álvaro González eftir að hafa verið rekinn af velli fyrir að slá hann á hnakkann.[81] Í kjölfarið tjáði Neymar sig frekar á samfélagsmiðlum þar sem spænski varnarmaðurinn neitaði því að hafa verið haldinn kynþáttafordómum á meðan leiknum stóð.[82] Þann 16. september var Neymar settur í tveggja leikja bann fyrir hegðun sína.[83] Franska deildin hóf einnig rannsókn á meintum kynþáttafordómum Álvaro. Nokkrum dögum fyrir ákvörðun frönsku deildarinnar sagði spænska útvarpsstöðin Cadena SER að hún ætti upptökur af Neymar að beita Hiroki Sakai, leikmann OM, kynþáttaníði.[84] Þann 30. september ákvað franska deildin að bæði Álvaro og Neymar yrðu ekki settir í bann þar sem sönnun fyrir hegðun þeirra væri ófullnægjandi. Daginn eftir ákvörðunina neitaði Sakai á samfélagsmiðlum að Neymar hefði beitt sig kynþáttaníði.[84]
Neymar kaus Jair Bolsonaro, þáverandi forseta Brasilíu, í brasilísku þingkosningunum árið 2022.[85]
Santos
Barcelona
Paris Saint-Germain
Landslið Brasilíu